Víkingar eru komnir í Olís-deildina að ári eftir góðan sigur á Fjölni sem var þó ekkert auðveldur og Víkingar geta þakkað markverði sínum Magnúsi Gunnar sætið.
Fyrsta markið kom ekki fyrr en á 5 mínút og það var heimamark. Ef það var einhver spurning hvort Magnús markmaður heimamanna væri klár svaraði hann því játandi með flottum vöörslum í upphafi leiks og ekki var Ingvar verri hinumeginn. Stórsýning markvarðanna í upphafi.
Staðan 1-3 eftir 10 mínútna leik fyrir Fjölni sem var að spila fantagóða vörn og Víkingar ekki búnir að gera nema 1 mark í 10 mínútur. Magnús markmaður þeirra að bjarga þeim frá því að vera ekki komnir í mun meiri vandræði.
Fáránlega lítið skorað miða við leik þessara liða og staðan þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður, 3-4, Fjölnir með frumkvæðið og fyrri til að skora. Víkingar að gera sig seka um allt of marga tækniferila sóknarlega sem eiga ekki að sjást hjá svo reyndum leikmönnum og gátu einungis þakkað markverði sínum fyrir að vera ekki 6-7 mörkum undir.
Staðan 5-7 eftir 20 mínútna leik og það seig bara enn meira á ógæfuhlið Víkinga sem voru farnir að’ kasta boltanum upp í stúku. Ágúst tók leikhlé þó fyrr ehfði verið í stöðunni 6-9. Víkingar aðeins rönkuðu við sér og minnkuðu muninn í 1 mark 8-9 undir lok hálfleiksins.
Kristján Örn stórskytta Fjölnismanna meiddist og varð að fara af leikvelli og virtist sárþjáður á hægri hendi. Víkingar komust yfir í fyrsta skiptið í leiknum 10-9 og skoruðu svo síðasta mark fyrri hálfleiksins, staðan 11-9 í hálfleik.
Kristján virtist ná sér í hálfleik og kom inná vafinn. Magnús hélt uppteknum hætti og varði vítakast ásamt tveim skotum í upphafi seinni hálfleiks. Allt annað að sjá til sóknarleiks heimamanna í upphafi seinni háfleiks og þeir héldu áfram að leiða með 1-2 mörkum.
varnarleikur heimammanan góður á þessum kafla og með að taka Kristján Örn úr umferð varð sóknarleikur Fjölnis stirður. Víkingar virtust komnir á bragðið og komust 3 mörkum yfir 15-12 eftir 40 mínútur. En munurinn hélst áfram í 2 mörkum, staðan 19-16 þegar 10 mínútur voru eftir.
Munurinn jókst og Víkingar voru einfaldlega of stekir undir lokin, munurinn fór í 4 mörk 20-16. Víkingar einfaldlega létu þetta ekki fara í neina vitleysu undir lokin og sigruðu 26-19.
Meira á www.fimmeinn.is