Fjölnismenn unnu sinn 13. sigur í röð í 1. deild karla í handknattleik í gærkvöldi þegar þeir lögðu ÍR-inga að velli í Breiðholti, 26-30. Í hálfleik var staðan, 14-16, fyrir Fjölni sem leikið hefur af miklum styrk í deildinni til þessa í vetur. Liðið hefur afgerandi forystu í efsta sætinu.
Björgvin Páll Rúnarsson fór mikinn í leikunum og skoraði tíu mörk og Sveinn Jóhannsson kom næstur með átta mörk.
Fjölnir situr í toppsætinu með 26 stig að loknum 13. Umferðum en HK kemur í öðru sætinu með 19 stig. KR er í þriðja sætinu með sama stigafjölda.