Gunnunes til skoðunar sem nýtt athafnasvæði:
Björgun flytur og Bryggjuhverfið stækkar
- Bryggjuhverfið við Elliðaárvog mun stækka.
- Íbúðir koma á núverandi athafnasvæði Björgunar.
- Undirbúningur að umhverfismati er hafinn.
- Unnið er að tillögu að breytingu á aðal- og deiliskipulagi í Gunnunesi Fyrirhuguð uppbygging á Álfsnesi kallar á uppbyggingu innviða og framkvæmdir.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Lárus Dagur Pálsson framkvæmdastjóri Björgunar skrifuðu í dag undir viljayfirlýsingu þess efnis að Björgun flytji athafnasvæði sitt í Gunnunes sem er á sunnanverðu Álfsnesi. Vilyrði fyrir lóð er í samræmi við samþykkt borgarráðs.
Vinna við breytingar á skipulagi er þegar hafin og hefur ráðgjafafyrirtækinu Alta verið falin umsjón með verkinu. Umhverfismat er forsenda breytinga á skipulagi og m.a. verður gerð könnun á gróðurfari og dýralífi á svæðinu. Þá verða landkostir metnir út frá útivist, sjónrænni röskun, mati á menningarminjum og mögulegri mengun eða truflun í nágrenni svæðisins. Fjölmenn íbúðahverfi eru nokkuð langt undan og því sjónræn áhrif mest á nesinu sjálfu. Lítið er um að svæðið sé nýtt til útivistar. Gert er ráð fyrir umtalsverðum framkvæmdum í Gunnunesi eins og gatnagerð og annarri uppbyggingu innviða í framhaldi af breyttu skipulagi.
Björgun er framleiðandi steinefna til mannvirkjagerðar á Reykjavíkursvæðinu. Fyrirtækið nær í hráefni úr námum á hafsbotni með uppdælingu sem hefur til þessa verið flutt til frekari vinnslu á athafnasvæði félagsins vestan Bryggjuhverfisins við Ártúnshöfða, þar sem fyrirtækið hefur verið síðustu áratugina. Fyrirtækið hefur dregið úr starfsemi sinni á svæðinu og flytur i í síðasta lagi fyrir lok maí árið 2019. Stærsta verkefni Björgunar á Sævarhöfðanum sem hefst innan skamms er gerð fyrsta áfanga landfyllingar við Elliðavoginn sem felur jafnframt í sér endanleg skil lóðarinnar og mikilvægan undirbúning fyrir uppbyggingu svæðisins. Einnig er fyrirhugað hreinsunarstarf sem felst í að fjarlægja fínefni sem runnið hafa í sjó næst núverandi lóðamörkum í Elliðavognum.
Íbúabyggð við Elliðaárvoginn
Á athafnasvæði Björgunar við Elliðaárvoginn kemur næsti áfangi Bryggjuhverfis og hyllir undir lok deiliskipulagsvinnu. Eftir lögbundið kynningarferli verður mögulegt að bjóða lóðir til sölu og uppbyggingar.
Stækkun bryggjuhverfisins tengist niðurstöðu hugmyndasamkeppni um að breyta Ártúnshöfða í blandaða byggð íbúða og atvinnuhúsnæðis, auk þess að stækka hverfið með landfyllingum til norðurs út í Elliðaárvoginn.
Í frétt á vef Reykjavíkurborgar eru myndir og virkir tenglar á nánari upplýsingar http://reykjavik.is/frettir/bjorgun-flytur-og-bryggjuhverfid-staekkar