Fjölnir hefur gengið frá sölu á Viðari Ara Jónssyni til Brann þar sem hann hefur gengið frá þriggja ára samningi við liðið sem lenti í 2 sæti í norsku úrvaldsdeildinni á síðasta tímabili.
Samhliða sölunni á Viðari þá hafa félögin tvö gert með sér samkomulag um frekara samstarf sem m.a. mun fela í sér að Fjölnir mun senda efnilega leikmenn til æfinga hjá Brann.
Viðar Ari heldur til La Manga á Spáni á miðvikudaginn þar sem hann mun hitta fyrir nýju liðsfélaga sína í æfingarferð.
Viðar er fjórtándi Íslendingurinn sem hefur verið hjá Brann og því óhætt að segja að rík hefð sé fyrir Íslendingum hjá félaginu. Þar á meðal lék Ágúst Gylfason, þjálfari Fjölnis, með Brann 1995-1998.
„Við erum að fá leikmann sem er þegar góður en við erum sannfærðir um að hann eigi eftir að verða enn betri á komandi árum. Viðar mun koma með meiri samkeppni í hópinn og gefa þjálfaranum fleiri kosti,“ segir Rune Soltvedt, íþróttastjóri Brann. Soltvedt segir að Viðar sé meðal mest spennandi leikmanna í íslenska boltanum.
„Ég ætla að lofa ykkur því. Þetta verður árið. Ég ætla að kýla á atvinnumennsku. Mér finnst ég vera klár í það og væri mikið til í að taka skrefið,“ sagði Viðar í útvarpsþætti Fótbolta.net í síðasta mánuði.
Viðar verður 23 ára í lok vikunnar en hann hefur leikið sem bakvörður síðustu ár. Hann var á bekknum í úrvalsliði Pepsi-deildarinnar fyrir síðasta tímabil. Hann hefur tekið þátt í æfingaleikjum A-landsliðsins á þessu ári.
Frétt frá Fótbolta.net. Sjá alla fréttina