Undanúrslit í 1. deild karla í körfuknattleik eru að hefjast en fyrsta viðureign Fjölnismanna gegn ÍA verður í íþróttahúsinu í Dalhúsum annað kvöld, miðvikudaginn 30. mars, klukkan 19.15. Í hinni viðureigninni eigast við Valur og Skallagrímur og er fyrstu leikur liðanna á Hlíðarenda í kvöld.
Stuðningsmenn Fjölnis eru hvattir til að mæta og styðja vel við bakið á sínum mönnum. Allir eru hvattir til að klæðast gulu. Allir iðkendur Fjölnis, 16 ára og yngri, sem mæta í gulu fá popp eða snakk í boði Þykkvabæjar.
Boðið verður upp á andlitsmálun frá kl. 18:30. Pylsupotturinn verður á sínum stað í sjoppunni, grillsamlokur og ýmislegt annað góðgæti.