Sunddeild Fjölnis býður í sumar upp á sundnámskeið í Grafarvogslaug. Líkt og áður sér Gunna Baldurs um kennsluna auk þess sem aðstoðarfólk verður í lauginni. Aðstoðarfólkið fylgir börnunum í gegnum búnings– og baðklefa.
Eftirfarandi námskeið verða í boði sumarið 2016:
13. júní – 24. júní (9 dagar) 6.750 kr.
27.júní – 8. júlí (10 dagar) 7.500 kr.
8. ágúst – 19. ágúst (10 dagar) 7.500 kr.
Tímar sem í boði eru:
8:15– 8:55 Frístund
9:00-9:40 4-10 ára
9:45-10:25 4-10 ára
10:40-11:20 4-10 ára
11:25-12:05 4-10 ára
Börnum sem eru 8-10 ára er boðið að synda með sér námsskrá og er þá sérstök áhersla lögð á þau atriði er uppá vantar úr skólasundi.
Hægt er að skrá með því að smella hér eða á skrifstofu Fjölnis í síma 578-2700 eða með tölvupósti á aefingagjold@fjolnir.is