Danski framherjinn Marcus Solberg hefur skrifað undir samning við Fjölnis þess efnis að leika með liðinu í Pepsídeildinni í knattspyrnu í sumar. Þetta er sjötti erlendi leikmaðurinn sem Fjölnir hefur fengið í sínar raðir fyrir verkefnin í sumar.
Solberg 21 árs framherji og hefur leikið með dönskum liðunum Aarhus og Silkeborg auk þess sem hann á leiki með yngri landsliðum Dana.