Sjálfstæðisflokkurinn kynnir málefnin sín í Reykjavík

Hildur Björnsdóttir

„Við viljum búa vel að fjölskyldufólki en reynslan hefur sýnt að fjölskyldufólk flýr í nágrannasveitarfélög þar sem þjónustan reynist betri. Við ætlum að tryggja öllum börnum leikskólapláss frá 12 mánaða aldri. Þá leggur flokkurinn áherslu á svokallaðan foreldrastyrk fyrir foreldra sem kjósa að dvelja heima með börnin sín eftir fæðingarorlof, til tveggja ára aldurs,” segir Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík en frambjóðendur flokksins kynntu málefnaáherslur flokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar á blaðamannafundi í Perlunni í dag.

Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að skapa barnvæna borg sem setur fjölskyldur í forgang.

Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á jöfn tækifæri fyrir öll börn að stunda íþróttir og tómstundir. „Við ætlum að hækka frístundakortið í 70 þúsund krónur árlega og tryggja aðgang að kortinu fyrir börn frá 5 ára aldri. Þá viljum við að uppbyggingu íþróttamannvirkja í borginni sé forgangsraðað í þágu barna og ungmenna.”

Sjálfstæðisflokkurinnn vill tryggja að höfuðborgin verði eftirsóknarverður staður fyrir fólk á öllum æviskeiðum. „Við viljum borgarumhverfi sem laðar að sér hæfileikafólk með spennandi búsetukostum, fjölbreyttum samgöngum og úrvali atvinnutækifæra – meðal annars með því að setja á fót nýsköpunarþorp í Örfirisey með áherslu á hugvitsdrifna starfsemi. Við ætlum jafnframt að búa betur að eldri Reykvíkingum með uppbyggingu lífsgæðakjarna og auknum afsláttum af fasteignagjöldum,” segir hún.

Einfaldari kerfi og rafræn stjórnsýsla

Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á að Reykjavík verði borg sem ryður veginn fyrir þá sem vilja sækja fram. „Þessu vill flokkurinn meðal annars ná fram með því að einfalda kerfin, innleiða rafræna stjórnsýslu og tryggja 30 daga afgreiðslufresti innan borgarkerfisins,” segir Hildur.

Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að ráðast í kröftuga húsnæðisuppbyggingu með skipulagi nýrra hverfa samhliða þéttingu byggðar innan hverfa sem hafa til þess svigrúm. Samhliða ætlar flokkurinn að fjölga 15 mínútna hverfum og efla nærþjónustu hverfanna. „Við leggjum áherslu á öflugri verslunarkjarna innan borgarhverfa og hyggjumst setja á laggirnar stofnstyrki til þeirra sem vilja hefja starfsemi í auðum rýmum.”

Fjölþættar lausnir við samgönguvanda

Jafnframt er lögð áhersla á lausn samgönguvandans með fjölþættum lausnum.  „Við viljum vinna að lausn vandans strax. Hefja uppbyggingu Sundabrautar á næsta kjörtímabili, innleiða hjólreiðaáætlun af krafti, fjölga heitum stígum í borginni og fara í öfluga uppbyggingu almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Frjálsir valkostir í samgöngum er lykilatriði,” segir Hildur.

Flokkurinn vill enn fremur að grunnþjónusta verði efld. Sorphirða verði öflugri og betur verði staðið að snjóruðningi að vetri og götusópun að vori. „Hrein borg – fögur torg er gamal slagorð Sjálfstæðisflokksins sem sannarlega er tilefni til að endurvekja, enda borgin sóðaleg og illa hirt,” segir Hildur.

„Sjálfstæðisflokkurinn berst fyrir höfuðborg sem byggist á frjálsum valkostum, jöfnum tækifærum, frjálsu framtaki og hagkvæmum rekstri, til að mynda með minna stjórnkerfi, fækkun borgarfulltrúa og minni umsvifum í samkeppnisrekstri,” segir Hildur.

Sjálfstæðisflokkurinn mun setja eftirfarandi mál á dagskrá fyrir borgarstjórnarkosningar í vor:

  1. Barnvæn borg: Sjálfstæðisflokkurinn vill að Reykjavíkurborg verði eftirsóknarverður búsetukostur fyrir fjölskyldufólk. Við ætlum að tryggja:
  • Leikskólapláss fyrir öll börn frá 12 mánaða aldri.
    • Foreldrastyrk fyrir foreldra sem vilja dvelja heima með börnin sín eftir fæðingarorlof, til tveggja ára aldurs. 100 þúsund krónur á mánuði.
    • Frístundakort sem gildir frá 5 ára og verði hækkað í 70 þúsund krónur.
    • Uppbygging íþróttamannvirkja verði í þágu barna og ungmenna.
    • Aukið valfrelsi í skólamálum með auknum stuðningi við sjálfstætt starfandi skóla, þannig að ekki þurfi að innheimta skólagjöld.
  • Kröftug húsnæðisuppbygging í lifandi hverfum: Sjálfstæðisflokkurinn vill hefja kröftuga húsnæðisuppbyggingu um alla borg í lifandi borgarhverfum. Við ætlum að tryggja:
  • Skipulag nýrra hverfa að Keldum og í Örfirisey.
    • Þéttingu byggðar innan hverfa sem hafa til þess svigrúm, svo Úlfarsárdal, Staðarhverfi og Kjalarnesi.
    • Fleiri 15 mínútna hverfi, þar sem verslun og þjónusta finnast í korters göngufæri.
    • Öflugri verslunarkjarna innan borgarhverfa með stofnstyrkjum til þeirra sem vilja hefja starfsemi í auðum rýmum.
    • Einfaldara kerfi, rafræna stjórnsýslu og 30 daga afgreiðslufresti.
  • Frjálsir valkostir í samgöngum: Sjálfstæðisflokkurinn vill tryggja frelsi og val um fjölbreyttar samgöngur. Einn fararmáti á ekki að útiloka annan – framtíðin á að fela í sér valfrelsi og sveigjanleika. Við ætlum að tryggja að:
  • Uppbygging Sundabrautar verði hafin á kjörtímabilinu.
    • Öflugar og nútímalegar almenningssamgöngur.
    • Hjólreiðaáætlun Reykjavíkurborgar verði framfylgt af metnaði.
    • Upphituðum stígum verði fjölgað í borginni.
    • Snjallar ljósastýringar um alla borg.
    • Orkuskiptum verði hraðað með bættum aðgangi að hleðslustöðvum í borgarlandinu, í samstarfi við aðila á markaði.
  • Umhverfis- og loftslagsmál: Sjálfstæðisflokkurinn leggur ríka áherslu á grænt og heilnæmt borgarumhverfi. Við ætlum að tryggja að:
  • Kolefnisbindingu með lausnum á borð við Carbfix, skógrækt og endurheimt votlendis.
    • Staðið verði vörð um græn svæði og þau byggð upp til útivistar.
    • Sorphirða verði öflugri og endurvinnsla samræmd.
    • Betur verði staðið að snjóruðningi að vetri og götusópun að vori.
  • Atvinnulíf, menning og nýsköpun: Sjálfstæðisflokkurinn vill tryggja jákvæða hvata fyrir framfarir, lifandi menningarlíf og verðmætasköpun í Reykjavík.  Við ætlum að tryggja:
  • Aukið framboð atvinnulóða í Reykjavík.
    • Lækkun fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði.
    • Nýsköpunarþorp í Örfirisey fyrir hugvitsdrifna starfsemi.
    • Aukinn stuðning við menningarlíf í borginni.
  • Eldri Reykvíkingar: Sjálfstæðisflokkurinn vill byggja upp aldursvæna höfuðborg. Við ætlum að tryggja:
  • Uppbyggingu lífsgæðakjarna fyrir eldri Reykvíkinga.
    • Lækkun fasteignaskatta af íbúðarhúsnæði þeirra sem eru 67 ára eða eldri. Tekjumörk vegna afslátta verði hækkuð sem nemur 1.800.000 kr. af árstekjum.
  • Heilbrigður fjárhagur: Sjálfstæðisflokkurinn telur mikilvægt að rekstur borgarkerfisins verði endurskipulagður. Stjórnkerfi borgarinnar hefur orðið að bákni –  minnka þarf yfirbyggingu, stöðva skuldasöfnun og sýna ráðdeild þegar sýslað er með fjármuni borgarbúa. Við ætlum að tryggja:
  • Hagræðingu í opinberum rekstri.
    • Minni umsvif í samkeppnisrekstri.
    • Þrýsting hvað varðar fækkun borgarfulltrúa úr 23 í 15.

Hægt er að lesa meira um komandi kostningar hér á vef Reykjavíkurborgar

Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.