Saga Sif Gísladóttir undirritaði samning við meistaraflokk kvenna á dögunum. Saga Sif leikur stöðu markmanns og er fædd árið 1995 og kemur frá FH þar sem hún er uppalin og hefur leikið allan sinn feril.
Saga er gríðarlega metnaðarfullur og vinnusamur markmaður sem kemur til með að styrkja liðið sem fyrir er. Eftir að hafa spilað í efstu deild í fyrra þá eru stelpurnar staðráðnar í því að koma liðinu aftur upp.