Kvöldfyrirlestur 2.nóvember 2016 – Í næstu viku!
Vinsamlega skráið ykkur til þátttöku sem fyrst.
Spennandi innsýn í nánustu framtíð
Köld orka = Borgir án loftmengunar
- Fyrir 100 árum breytti iðnbyltingin lífi fólks í heiminum.
- Fyrir u.þ.b. 50 árum upplifðum við tölvubyltinguna sem einnig umbylti lífi heimsbyggðarinnar.
- Í dag gæti orkubyltingin verð á næsta leiti, sem mun breyta lífi fólks meira en allt annað til þessa.
Þá munum við upplifa:
- Næg orka verður til staðar á lágu verði og með lítilli mengun.
- Háspennulínur hverfa þar sem orkan verður framleidd við hliðina á notandanum.
- Iðnfyrirtæki framleiða sína orku sjálf.
- Orkufrek tæki eins og bílar, eldavélar og tölvur verða seld með orkunni sem þau þurfa að nota á líftíma sínum.
Fyrirlesari: Kjartan Garðarsson vélaverkfræðingur
Fundartími: Miðvikudagur 2.nóvember kl. 20.00 – 22:00
Fundarstaður: Rafiðnaðarskólinn – Stórhöfða 27 – 1.hæð
Allir sem áhuga hafa á málefninu eru velkomnir og aðgangur er frír.
Þeir sem áhuga hafa á þátttöku vinsamlega skrái sig inn á vefsíðu skólans eða í síma 568-5010.