Góðan daginn,
Þriðjudaginn 12. apríl kl. 17:00 mun Dagur B. Eggertsson borgarstjóri koma í heimsókn til okkar Fjölnismanna í Sportbitann í Egilshöll, fundurinn er opinn öllum Fjölnismönnum. Á fundinum er kjörið tækifæri fyrir okkur að segja hvað okkur býr í brjósti, við hvetjum fólk til að mæta og vera með málefnalegar fyrirspurnir varðandi íþróttamálin í hverfinu okkar.
Hlökkum til að sjá ykkur,
Bestu kveðjur,
Málfríður Sigurhansdóttir
Íþrótta- og félagsmálastjóri
Ungmennafélagsins Fjölnir
frida@fjolnir.is
578-2700