Undirritaður hefur verið samningur um lagningu og endurnýjun á gerivgrasi á innanhúss knattspyrnuvöll í Egilshöll. Að undangenginni verðkönnun og mati á gæðum boðinna lausna, var ákveðið að ganga til samninga við fyrirtækið Polytan Gmbh. Félagið, sem er þýskt, sérhæfir sig í framleiðslu og sölu á hágæða gervigrasi og gerviefni á hlaupabrautir ásamt því að vera leiðandi í ýmsum lausnum sem snúa að íþrótta- og tómstundaaðstöðu. Íslendingar hafa margra ára reynslu af vörum og lausnum frá Polytan en hérlendis eru fjöldi íþróttavalla með gervigras frá þeim framleiðanda. VSÓ ráðgjöf var ráðgjafi Regins í verkefninu og stýrði undirbúningi og samningum vegna verksins.