Starfsmenn verktaka hafa því orðið að vinna lengri vinnudaga en áætlað var. Forsópun (fyrri umferð) tefst í Hliðunum, Lauganeshverfi og Bökkunum og Hólunum í Breiðholti frá því sem áætlað hafði verið. Í miðborginni gekk einnig hægar en þurfti þar sem bílum var lagt jafnóðum í stæði þó búið væri að setja upp skilti við götur.
Þrátt fyrir þessar tafir seinkar verkinu ekki í heild. Hreinsun gatna og stíga í borginni á að vera lokið í 24. viku eða fyrir 13. júlí.
Verkstaða og nánari upplýsingar um hreinsun eru á vefsíðunni reykjavik.is/hreinsun