Kosningar hefjast á föstudag
Kosningar í íbúalýðræðisverkefninu Hverfið mitt hefjast nú á föstudag þann 3. nóvember og standa til 19. nóvember. Allir Reykvíkingar sem verða 16 ára í ár og eldri geta kosið.
Íbúar í Reykjavík munu kjósa hvaða hugmyndir koma til framkvæmda en til ráðstöfunar eru alls 450 milljónir króna og gefur það umtalsvert svigrúm. Framkvæmdafé var hækkað í fyrra og mæltist það vel fyrir.
Stjörnu prýdd hugmynd fær aukið vægi
Nýjung í ár er að kjósendur geta að auki sett stjörnu við eitt verkefni og þannig gefið því verkefni eitt aukaatkvæði. Markmiðið er að sjá hvaða verkefni eru íbúum í hverfunum allra mikilvægust. Mögulegt er að greiða atkvæði oftar en einu sinni, en það er síðasta atkvæðið sem gildir.
Þegar kosningar hefjast á föstudag verður opnað fyrir kosningavefinn á slóðinni hverfidmitt.is. Fram að kosningum vísar vefslóðin á almenna upplýsingasíðu um verkefnið.
Vonast til að slá ný met í kosningaþátttöku
Hugmyndasöfnun í mars gekk vonum framar og slógu íbúar nýtt met í hugmyndaauðgi, en alls bárust 1.080 hugmyndir. Teymi fagfólks á umhverfis- og skipulagssviði mat í framhaldi hvaða hugmyndir væru tækar í kosningu og hverfisráð stillti upp allt að 25 hugmyndum sem kosið verður um í nóvember. Þessa dagana er verið að undirbúa og álagsprófa kosningakerfið.
Í fyrra var slegið met í kosningaþátttöku en þá kusu 9,4% þeirra sem atkvæðisrétt höfðu. „Við viljum auðvitað slá þátttökumetið aftur,” segir Unnur Margrét Arnardóttir, verkefnisstjóri hjá Reykjavíkurborg. „ Aukin þátttaka í kosningum og hugmyndasöfnun bendir til að þess að við séum á réttri leið”.
Þetta er í sjötta sinn sem íbúar í Reykjavík koma að vali verkefna í hverfunum og sífellt er verið að gera umbætur á verkefninu, vefsíðunni og samráðsferlinu, til að bregðast við athugasemdum og gagnrýni.
Nánari upplýsingar veitir Unnur Margrét Arnardóttir, verkefnisstjóri, sími 6616644
Í frétt á vef Reykjavíkurborgar eru vísanir í tengt efni > http://reykjavik.is/frettir/hm-kosningar-hefjast-fostudag