Jólaskákmót 2014

Jólaskákmót TR og SFS 2014Yngri flokkur (1. – 7. bekkur) Keppnisstaður: Taflfélag Reykjavíkur, Faxafeni 12 Keppt verður í stúlkna og drengja flokkum (opnum flokkum). Heimilt er að senda A, B, C o.s.frv. stúlknasveitir og A, B, C o.s.frv. drengjasveitir.Í hverri sveit eru 4 keppendur og 0-2 til vara.

Í yngri flokki verður keppt í tveimur riðlum sunnudaginn 30. nóvember. Suður riðill hefur keppni kl. 10.30 (sjá skóla hér að neðan) Norður riðill hefur keppni kl. 14.00 (sjá skóla hér að neðan) Tefldar verða 6 umferðir (hraðmót) eftir Monrad kerfi. Umhugsunartími: 10 mín. á skák. Þátttökurétt hafa börn úr grunnskólum Reykjavíkur í 1.-7. bekk.

Mikilvægt er að liðsstjóri fylgi liðum hvers skóla. Verðlaunaafhending verður að lokinni keppni. Tvær efstu sveitir í hvorum riðli munu keppa til úrslita við sveitirnar úr hinum riðlinum um þrjú efstu sætin mánudaginn 1. desember kl. 17:00.
Eldri flokkur (8. – 10. bekkur). Keppnisstaður: Taflfélag Reykjavíkur, Faxafeni 12. Keppt verður í stúlkna og drengja flokkum (opnum flokkum). Heimilt er að senda A, B, C o.sfrv. stúlknasveitir og A, B, C o.s.frv. drengjasveitir. Í hverri sveit eru 4 keppendur og 0-2 til vara.

Keppni í eldri flokki verður mánudaginn 1. desember kl. 17:00. Tefldar verða 6 umferðir (hraðmót) eftir Monrad kerfi. Umhugsunartími: 15. mín. á skák. Þátttökurétt hafa unglingar úr grunnskólum Reykjavíkur í 8.-10. bekk. Verðlaunaafhending verður að lokinni keppni. Þátttaka í báða flokka tilkynnist til skrifstofu Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur eigi síðar en föstudaginn 28. nóvember. Ekki verður hægt að skrá lið á mótsstað. Skráning sendist á netfang: soffia.palsdottir@reykjavik.is
Skipting í riðla yngri flokks
Yngri flokkur – Suður riðill (kl. 10.30):
Ártúnsskóli ● Breiðagerðisskóli ● Breiðholtsskóli ● Brúarskóli
Fellaskóli ● Fossvogsskóli ● Grandaskóli ● Háaleitisskóli ● Hagaskóli ● Háteigsskóli Hlíðaskóli ● Hólabrekkuskóli ● Hraunkot ● Klettaskóli ● Melaskóli Norðlingaskóli ● Réttarholtsskóli ● Selásskóli ● Seljaskóli ● Suðurhlíðarskóli ● Ölduselsskóli
Yngri flokkur – Norður riðill (kl. 14:00):
Árbæjarskóli ● Austurbæjarskóli ● Dalsskóli ● Foldaskóli ● Hamraskóli ● Húsaskóli Ingunnarskóli ● Ísaksskóli ● Kelduskóli ● Klébergsskóli ● Landakotsskóli ● Langholtsskóli Laugalækjaskóli ● Laugarnesskóli ● Rimaskóli ● Sæmundarskóli ● Vættaskóli Vesturbæjarskóli ● Vogaskóli

Kveðja,
Soffía Pálsdóttir