Igor Jugovic hefur framlengt samning sinn við Fjölni til tveggja ára eða út tímabilið 2018.
Igor sem gekk í raðir okkar Fjölnismanna fyrir tímabliið hefur komið við sögu í öllum leikjum liðsins á tímabilinu og hann hefur verið algjör lykilmaður í leik liðsins í sumar.
Á myndinni sjást Igor og Árni Hermannsson formaður knattspyrnudeildar Fjölnis handsala samninginn.