
Gróska forvarnafélag Grafarvogs og Kjalarness stendur fyrir fræðslufundum fyrir foreldra í vetur.
Þriðjudaginn 22. október n.k. kl. 19:30-21:30 verður fræðslufundur fyrir foreldra í Hlöðunni við Gufunesbæ.
Á þessum fyrsta fundi verður fjallað um stöðu barna og unglinga í Grafarvogi út frá könnun Rannsóknar og greiningar. Jafnframt verður fjallað um hvernig foreldrar geti stutt við börn sín til að efla þau í að takast á við áhættuþætti og hópþrýsting.
Að lokum er lögð áhersla á samstarf foreldra að bættu samfélagi.
Margrét Lilja Guðmundsdóttir sérfræðingur Rannsóknar og greiningar og Sigríður Björk Einarsdóttir Framkvæmdastjóri SAMFOK verða með erindið:
„Það eru engir töfrar“
Að loknu erindi verða almennar umræður um efnið.
Gróska er forvarnafélag Grafarvogs og Kjalarness. Í Grósku sitja fulltrúar skólastjóra, leiksskólastjóra, Borgarholtsskóla, foreldra, unglinga, Gufunesbæjar, Fjölnis, Heilsugæslunnar, Lögreglunnar, Grafarvogskirkju og Miðgarðs.
Hvet foreldra Rimaskóla til að fjölmenna og sjá hvernig staðan er á börnum okkar hér í hverfinu.
