Alls eru núna veittar upplýsingar um fjórtán efnisflokka sem heita: Borgarskipting, Götur og stígar, Hús og lóðir, Lagnir, Lýðfræði og fasteignir, Menningarminjar, Myndefni, Mælipunktar, Náttúrufar, Saga og þróun, Íþróttir, Umferð, Þjónusta og Þungamiðjur búsetu. Í hverjum flokki eru eitt eða fleiri upplýsingaþemu, en upplýsingar um þau ásamt ýmsum almennum upplýsingum um Borgarvefsjá fást með því að smella á „Borgarvefsjá-Hjálp“.
Gagnagrunnar LUKR eru stöðugt uppfærðir og eiga því ávallt að veita nýjustu fáanlegar upplýsingar. Auðvelt er að bæta við nýjum atriðum af ýmsu tagi, og má gera ráð fyrir að Borgarvefsjá haldi áfram að taka örum breytingum, þannig að hún þjóni sem best þörfum íbúa og starfsmanna borgarinnar á hverjum tíma.
Borgarvefsjá fyrir snjallsíma og spjaldtölvur:
Android.
iOS.
Um Borgarvefsjá
Þessi útgáfa Borgarvefsjár er unnin af Samsýn ehf. í samstarfi við umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur, Upplýsingatæknideild Reykjavíkurborgar og Orkuveitu Reykjavíkur, en þessar borgarstofnanir/ -fyrirtæki eru aðilar að LUKR. Umhverfis- og skipulagssvið hafði heildarverkstjórn á hendi og Guðmundur R. Einarsson sá um útlitshönnun.
Fyrsta útgáfa Borgarvefsjár kom út í desember 1999 og hefur verið í stöðugri þróun síðan.
ATHUGIÐ! Óheimilt er að nota kort úr Borgarvefsjá við jarðvegsframkvæmdir! Sjá nánar tengilinn „Um notkun korta“ hér til hægri sem veitir almennar upplýsingar um gögn LUKR og notkunarskilmála kortanna.
Sömuleiðis er hér hægra megin hægt að sækja kynningarbækling um Borgarvefsjá á pdf – formi.
Athugasemdir sendist til umsjónarmanns Borgarvefsjár á netfangið bvs@rvk.is.