Hreyfi-Áskorun Fjölnis – #FjölnirHeima

Áskorun Fjölnis til iðkenda og annarra félagsmanna. Við viljum hvetja allt landið til að hreyfa sig heima á þessum krefjandi tímum https://fjolnir.is/felagid-okkar/aefum-heima/.

Í tilefni samkomubanns og lokunar á íþróttastarfsemi og líkamsræktarstöðva ætlar Fjölnir að fara af stað með skemmtilega áskorun! Það sem þú þarft að gera er að setja inn færslu með mynd eða myndbandi á Instagram, með þinni útgáfu af Heima-Æfingu og merkja #FjölnirHeima og fylgja @ungmennafelagidfjolnir á Instagram.

Úrslit verða tilkynnt 31. október!

Glæsilegir vinningar eru í boði:

  • Fjórar Grettir Power Dry æfingapeysur frá 66 norður
  • Tvær úlpur frá New Wave Iceland
  • Gjafabréf frá Keiluhöllinni
  • Fjölnishandklæði, derhúfur og sængurver

Skilyrði eru að setja inn sitt eigið efni og aðgangurinn þarf að vera stilltur á ‘public’ svo við sjáum þitt framlag! Við hvetjum alla áhugasama til að taka þátt og nota ímyndunaraflið til að gera sýna frá skemmtilegum æfingum. Það má taka þátt eins oft og maður vill! Dómnefnd velur sex bestu framlögin þann 31. október, einnig verða veitt útdráttarverðlaun fyrir þátttöku.

Við fengum nokkra úr hópi afreksíþróttafólks okkar til að taka sýnikennslu á nokkrum æfingum sem allir geta gert heima við. Æfingarnar má sjá í myndböndunum hér á #FjölnirHeima heimasvæðinu okkar: https://fjolnir.is/felagid-okkar/aefum-heima/

Með bestu kveðju,

Arnór Ásgeirsson

Markaðsfulltrúi Fjölnis

arnor@fjolnir.is / +354 849 3418

Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.