Hreinsunardagur Korpúlfa
Fegrunarnefnd Korpúlfa hefur ákveðið að kveðja sumarið með hreinsunarátaki
mánudaginn 31. ágúst 2015 sem lýkur með grilluðum pylsum kl. 13:00 í Gufunesbæ.
Mæting kl. 10:00 í Borgum, þar verður þátttakendum dreift á starfsstöðvar, áhöld og pokar til staðar. Vonumst til að sjá sem flesta á öllum aldri, margar hendur vinna létt verk og þökkum öllum þeim sem tekið hafa þátt í þeim þremur hreinsunardögum Korpúlfa sem hafa verið og safnast hefur alls 560 kg. af rusli.
Gerum Grafarvog að fegursta hverfi Reykjavíkur
Korpúlfar, samtök eldri borgara í Grafarvogi.