Starfsfólk umhverfis- og skipulagsviðs í Borgartúni hreinsuðu nærumhverfi sitt í morgun í góðu veðri í tilefni af evrópskri hreinsunarviku 2.-7. maí. Á laugardaginn er sérlegur hreinsunardagur borgarbúa.
Starfsfólkið safnaðist saman á kaffistofum og tók sér poka og hanska í hönd og arkaði á tiltekin svæði. Margar hendur vinna létt verk og á klukkustund höfðu safnast saman margir pokar af almennu rusli. Plast og pappír var algengasta efnið en sígarettustubbar lágu hvarvetna. Sá hvimleiði siður reykingafólks að kasta sígrettum hvert sem er, hefur vaxið stórlega.
Eftir hreinsunarstarfið gekk fólk aftur í hús, hreinsaði hendur sínar og gæddi sér á gómsætum samlokum. Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar hvetur aðrar stofnanir og fyrirtæki til að huga að nærumhverfi sínu og efna til hreinsunar.
Hreinsum borgina okkar
„Tökum þátt og látum okkur annt um umhverfið, því borgin er okkar,“ segir Einar Guðmannsson verkefnisstjóri hreinsunarátaksins Hreinsum Reykjavík saman. Í ár er lögð áhersla á að hreinsa opin leiksvæði vel og er takmarkið sé að hreinsa Reykjavík eftir veturinn og gera hana hreina fyrir sumarið. Yfirleitt komi mikið af rusli undan snjónum á vorin. Borgarbúar geta sótt ruslapoka á hverfisstöðvar Reykjavíkurborgar á Njarðargötu, við Jafnasel og Stórhöfða meðan á átakinu stendur.
Til að auðvelda borgarbúum og félagasamtökum verkið hefur skráningarsíða verið sett upp þar sem hægt er að velja sér opin leiksvæði. Þá er fólk hvatt til að senda myndir á facebook síðu átaksins og einnig #hreinsumsaman.
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, afhenti fulltrúum Korpúlfa viðurkenningarskjal í upphafi vikunnar fyrir öflugt starf félagsmanna við hreinsun Grafarvogshverfis. Gönguhópar Korpúlfa eru góð fyrirmynd í þessum efnum.
Tökum þátt og tínum rusl
Starfsfólk Reykjavíkurborgar verður til staðar laugardaginn 6. maí og mun svo sækja ruslapokana á valda staði sem merktir verða á kortum af hópunum sjálfum eða þeir tilkynntir til borgarinnar á netfangið upplysingar@reykjavik.is eða í síma 411 1111.
Mjög gott veður verður í Reykjavík og um allt land næstu daga.