Menntavísindasvið Háskóla Íslands kallar eftir tilnefningum frá almenningi um góða kennara. Tilgangurinn með átakinu er að vekja athygli þjóðarinnar á kennarastarfinu; hversu áhugavert og skemmtilegt það er og hversu mikil áhrif kennarar geta haft á einstaklinga og samfélagið. Niðurstöður átaksins verða kynntar við hátíðlega athöfn í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð þann 1. júní kl. 17:00.
Þjóðþekktir einstaklingar hafa lagt átakinu lið og í stuttum myndböndum segja þeir frá þeim kennurum sem hafa haft áhrif á líf þeirra og störf. Meðal þeirra eru: Ari Eldjárn, textahöfundur og uppistandari, Auður Bjarnadóttir jógakennari, Benedikt Hermann Hermannsson tónlistarmaður, Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra og Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður.
Við hvetjum landsmenn til að taka þátt í þessu átaki, tilgreina eiginleika sem prýða góða kennara og heiðra þá sem hafa haft jákvæð áhrif á líf þeirra.
Vertu með og tilnefndu þinn eftirlætiskennara!
Hægt er að senda inn tilnefningar og fræðast nánar um átakið á hafduahrif.is
Nánari upplýsingar veitir Ingunn Eyþórsdóttir (ingunney@hi.is / 661-2566) markaðs- og kynningarstjóri Menntavísindasviðs Háskóla Íslands.
Vinsamlegast vekið athygli á þessu skeyti meðal foreldra í ykkar skóla.
Björn Rúnar Egilsson
Verkefnastjóri hjá Heimili og skóla og SAFT