Skákfélagið GM Hellir leiðir í fyrstu deild Íslandsmóts skákfélaga en 2. umferð fór fram í kvöld. Sveitin vann skáksveit Taflfélags Bolungarvíkur 5,5-2,5 og hefur 13 vinninga.
Taflfélag Vestmannaeyja, sem vann b-sveit GM Hellis er í 2. sæti með 12,5 vinning. Íslandsmeistarar Víkingaklúbbsins unnu Taflfélag Reykjavíkur 5-3 en þessar sveitir eru jafnar í 3.-4. sæti með 10,5 vinning.
Önnur úrslit kvöldsins voru þau að Skákfélag Akureyrar hafði betur gegn Fjölnismönnum 4,5-3,5 og Vinaskákfélagið byrjar veru sína í efstu deild ákaflega vel og vann b-sveit TR 5-3.
Þriðja umferð fer fram á morgun og hefst kl. 11. Þá mætast forystusauðirnir, í GM Helli, b-sveit Taflfélags Reykjavíkur og Eyjamenn mæta Bolvíkingum. Íslandsmeistarar Víkingaklúbbsins mæta nýliðum Vinaskákfélagsins.