Fyrir EM mun Keiluhöllin í Egilshöll í samstarfi við Ölgerðina og Carlsberg International, setja upp fyrstu Carlsbergstúku á Sportbar í heiminum. En Carlsbergstúkur hafa hingað til verið settar upp á öllum helstu knattspyrnuvöllum í heimi.
“Þetta er auðvitað rosalega spennandi verkefni. Það er auðvitað verið að tjalda öllu til vegna þess að Ísland er komið á lokakeppni EM, ef þetta gefst vel þá munum við halda í stúkuna og gera Enska boltann enn betri í haust. Ölgerðin og Carlsberg tóku strax vel í hugmyndina og með þeirra aðkomu varð hún að veruleika”, segir Sigmar Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri Keiluhallarinnar.
Stúkan mun taka 20 manns í sæti og hægt er að borða í sætunum sem eru útbúin með borðum.