Fjölnismenn unnu frábæran sigur á Skagamönnum, 0-3, í 32-liða Borgunarbikarsins í knattspyrnu á Akranesi í gærkvöldi. Charles Magee kom Fjölni yfir á 13. mínútu og sex mínútum síðar var Aron Sigurðarson búinn að bæta öðru marki við. Hann var síðan aftur á ferðinni sjö mínútum fyrir leikslok.
Fjölnismenn lék á köflum mjög góða knattspyrnu með Aron Sigurðarson fremstan í flokki. Aron átti stórleik og gerði Skagamönnum mikinn usla í leiknum. Fjölnisliðið er að leika stórvel um þessar mundir og er komið í 16-liða úrslit keppninnar.