Flugeldasala stendur nú yfir sem hæst en gamla árið verður kvatt með stæl á miðnætti annað kvöld. Landsmenn hafa verið duglegir í gegnum tíðina að skjóta flugeldum á loft og kveðja þannig gamla árið og fagna hinu nýja. Það hefur ekki farið framhjá neinum manni að Grafarvogsbúar hafa alltaf verið duglegir að skjóta upp flugeldum á þessum tímamótum.
Í Spönginni mörg undanfarin ár hefur Hjálparsveit skáta í Reykjavík verið með til sölu ýmiss konar flugelda og blys og annan varning tengdum áramótunum. Grafarvogsbúar í stórum hópum hafa lagt leið sína á sölustað skátanna í Spönginni en um leið eru þeir að styðja gott málefni.
Vefsíðan grafarvogsbuar.is var á ferðinni í hverfinu í kvöld og kom við á sölustað Hjálparsveitar Skáta í Spönginni og þar var nóg að gera og búið að vera í allan dag. Fram kom í fréttum í kvöld að sala flugelda sé betri núna en í fyrra.
Opnunartími flugeldasölu Hjálparsveitar Skáta í Spönginni er frá klukkan 10-16 á morgun, gamlársdag.