Í tilefni af byggingu nýs fimleikahúss við Egilshöllina hefur stjórn fimleikadeildar Fjölnis blásið til flugeldafjáröflunar í samstarfi við PEP flugelda. Velunnurum deildarinnar er boðið að kaupa gjafabréf sem gilda á sölustað PEP flugelda að Draghálsi 12 á opnunartíma flugeldasölunnar á milli jóla og nýárs.
Í boði er annars vegar gjafabréf upp á glæsilegan tertupakka með fimm tertum á kr. 12.400 og hins vegar veglegan fjölskyldupakka á kr. 8.400. Fimleikadeildin fær ríflegan skerf af sölu þessara gjafabréfa og mun andvirðið renna í sjóð til að fjármagna áhaldakaup fyrir nýja húsið sem stefnt er á að taka til notkunar haustið 2015. Salan fer fram í gegnum skráningarkerfi Fjölnis en þar er hægt að ganga frá greiðslu með kreditkorti.
Einnig verður hægt að senda inn pöntun á netfangið fjolnirflugeldar@gmail.com þar sem fram þarf að koma tegund og fjöldi gjafabréfa sem kaupa á, nafn og símanúmer kaupanda og kennitala kaupanda ef óskað er eftir reikningi fyrir kaupunum.
Pöntunum í gegnum netfang verður svarað með reikningsupplýsingum til að ganga frá greiðslu. Gjafabréfin verða svo afhent í skrifstofuanddyri Fjölnis í Egilshöllinni milli kl. 11 og 13, laugardaginn 27. desember. Verðum einnig með gjafabréf í beinni sölu á staðnum. Ef einhverjir geta ekki sótt á þessum tíma þá vinsamlegast hafið samband í fjolnirflugeldar@gmail.com og við finnum hentugan stað og stund til afhendingar.
Langþráður draumur Grafarvogsbúa um fimleikahús í hverfið er loks að rætast og til að gera þar alla aðstöðu sem glæsilegasta má búast við því að fimleikadeildin þurfi að fjármagna ýmis tækjakaup. Við vonum því að Fjölnismenn og aðrir velunnarar deildarinnar sjái sér fært að styðja við bakið á okkur með því að kaupa af okkur gjafabréf og að saman sjáum við glæsilegustu fimleikaaðstöðu í Reykjavík rísa í fallega hverfinu okkar, Grafarvogi.