Leikurinn gegn Stjörnunni sem átti að vera á sunnudaginn s.l. en var frestað vegna veðurs fer fram í dag kl. 16.30 á Fjölnisvelli.
Þessi leikur er gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið, Fjölnir að tryggja sér veru í deild þeirra bestu að ári og Stjarnan í gríðarlegri baráttu við FH um Íslandsmeistaratitilinn.
Við hvetjum fólk til að mæta tímanlega og er ekki vitlaust að fá sér göngutúr á völlinn því bílastæðin eru nú af skornum skammti í kringum völlinn okkar, það má búast við miklum fjölda á leikinn.
ÁFRAM FJÖLNIR
Hér má sjá stöðuna í deildinni