Formleg vígsla á nýja fimleikahúsi Fjölnis við Egilshöllina verður á laugardaginn kemur. Fimleikafólk frá Fjölni verður með sýningu við opnunina fyrir boðsgesti.
Húsið verður opnað almenningi eftir sýningu iðkennda fimleikadeildarinnar.
Bygging nýja hússins hófst í ágúst 2014 og er því rúmlega eitt ár í byggingu. Þessa dagana er verið að setja upp nýja salinn en húsið er um tvö þúsund fermetrar.