Falur Harðarson verður næsti þjálfari meistaraflokks karla í körfuknattleik hjá Fjölni. Skrifað hefur verið undir samning þess efnis sem gildir til ársins 2019.
Falur tekur við keflinu af Hjalta Þ Vilhjálmssyni sem hefur verið þjálfari meistaraflokks karla undanfarin ár.
Það þarf vart að kynna Fal fyrir körfuboltaáhugafólki en hann var í fremstu röð íslenskra leikmanna um árabil með Keflavík og hefur verið þjálfari hjá Keflavík til margra ára.
Á myndinni eru Guðmundur L. Gunnarsson, framkvæmdastjóri Fjölnir, Falur Harðarson nýráðinn þjálfari meistaraflokks karla og Guðlaug Björk Karlsdóttir, formaður körfuknattleiksdeildar Fjölnis.