Knattspyrnumennirnir Birnir Snær Ingason og Ægir Jarl Jónasson úr verða við æfingar hjá norska úrvalsdeildarliðinu Tromsö í næstu viku en þeir félagar halda utan á sunnudaginn.
Báðir hafa leikmennirnir framlengt samninga sína við Grafarvogsliðið og er ætlað stórt hlutverk með liðinu. Hjá Tromsö hitta þeir fyrrum liðsfélaga sinn, Aron Sigurðarson sem er að hefja sitt annað tímabil með liðinu.