Bílabúð Benna er 40 ára á þessu ári og býður allri fjölskyldunni á veglaga afmælishátíð, laugardaginn 13 júní, milli kl. 12-16 við Vagnhöfðann.
Fyrirtækið, var stofnað 26. maí, árið 1975, af hjónunum Benedikt Eyjólfssyni og Margréti Betu Gunnarsdóttur. Nú starfa um 130 manns hjá Bílabúð Benna, sem er eitt af öflugustu fyrirtækjunum innan bílgreinarinnar. „Við erum ákaflega stolt á þessum tímamótum og munum fagna áfanganum með ýmsum hætti á afmælisárinu undir yfirskriftinni „Bein leið í 40 ár.“ segir Benedikt Eyjólfsson, forstjóri Bílabúðar Benna.
„Við hefjum fagnaðinn, laugardaginn 13. júní, með veglegri afmælishátíð fyrir alla fjölskylduna, við höfuðstöðvar okkar að Vagnhöfða 23.“
Að sögn Benedikts verður hátíðin afar fjölbreytt, 40 afmælistertur verða á boðstólum ásamt grilluðum pylsum, gosi og ís.
Hátíðin verður afar fjölbreytt:
► 40 afmælistertur verða á boðstólum ásamt grilluðum pylsum, gosi og ís
► Sirkús Íslands mætir á svæðið og verður með ýmsar uppákomur
► Lína Langsokkur bregður á leik með börnunum.
► Hljómsveitin Sólin(n) frá Sandgerði, með Kidda Casio í fararbroddi, sem kemur saman sérstaklega af þessu tilefni
► Hoppukastali og leiktæki fyrir börnin
► Andlitsmálun og blöðrulistamenn
► Gamlir og nýir bílar verða til sýnis á svæðinu
Hlökkum til að sjá ykkur!