Vesturport hefur fengið vilyrði fyrir lóð í Gufunesi og með því styrkist enn frekar skapandi starfsemi á svæðinu. Gufunesið hefur verið kallað Þorp skapandi greina og áhersla hefur verið lögð á að laða að fyrirtæki á sviði kvikmyndastarfsemi og nú bætist leikhússenan við.
Borgarstjóri sagði frá lóðavilyrðinu á kynningafundi um Athafnaborgina á föstudag, en á þeim fundum er fjallað um atvinnulíf og uppbyggingu innviða. Vesturport, sem er þekkt fyrir nýstárlega nálgun á sviðslistir og hefur gert garðinn frægan á alþjóðavettvangi, stefnir á að byggja upp starfsemi sína í Gufunesi, upplýsti Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri og kallaði hún Gísla Örn Garðarsson forsvarsmann Vesturports upp á svið til undirskriftar. Eins og venja er um slík vilyrði er það með fyrirvara um samþykki borgarráðs.
Rými til lífs, leiks og lista
„Það er gleðiefni fyrir okkur að fá að taka þátt í uppbyggingu menningarstarfssemi á jafn spennandi svæði og Gufunesið er. Að reisa okkur rými til lífs, leiks og lista í beinni tengingu við verðandi íbúa. Það er vissulega tilhlökkunarefni að ganga til liðs við þá grósku sem nú þegar blómstrar í hverfinu og fá að setja mark okkar á áframhaldandi menningarstarf í borginni“, segir Gísli Örn.
Gísli Örn rifjaði upp við undirritunina að á næsta ári yrðu liðin 25 ár frá því Vesturport hóf starfsemi sína í litlum skúr á Vesturgötu og tók hópurinn nafn sitt af því.
Mikil uppbygging í Gufunesi
Undanfarin ár hefur átt sér stað mikil uppbygging í Gufunesi, bæði í atvinnustarfsemi sem og íbúðarhúsnæði. Sú uppbygging hvílir á grunni hugmyndasamkeppni um heildarskipulag svæðisins frá 2016 og nú áratug síðar má sjá miklar breytingar. Þetta misserið er í vinnslu næstu áfangar deiliskipulags og tengist lóðavilyrðið þeirri vinnu.

Ljósmynd: Ragnar TH