Kirkjuselið Spönginni

Vígsla Kirkjusels Grafarvogssóknar var í  Spönginni í Grafarvogi kl. 16.00 sunnudaginn 27. apríl.

Biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir vígði Kirkjuselið. Prestar safnaðarins sr. Vigfús Þór Árnason sóknarprestur, sr. Guðrún Karls Helgudóttir, sr. Lena Rós Matthíasdóttir og sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir þjónuðu  fyrir altari.

Einsöngur: Garðar Thór Cortes. Kór Grafarvogskirkju, Vox Populi og stúlknakór Reykjavíkur í Grafarvogskirkju sungu.

Stjórnendur kóra eru Hákon Leifsson tónlistarstjóri Grafarvogskirkju, Hilmar Örn Agnarsson organisti og Margrét Pálmadóttir kórstjóri.

Leikmenn fluttu ritningarorð. Safnaðarfélagið og sóknarnefnd bauð upp á kaffi og veitingar að lokinni vígslu.