Sá siður hefur tíðkast undanfarin ár að hlaupahópur Grafarvogs hittist á annan í jólum í Grafarvogskirkju og hleypur þaðan svokallað kirkjuhlaup. Í ár hlupum við frá kirkjunni okkar að Árbæjarkirkju, Fella og Hólakirkju, Seljakirkju, Maríukirkjunni, Breiðholtskirkju, Bústaðakirkju, Langholtskirkju og þaðan heim í Grafarvoginn aftur samtals rúmir 17km. Fallegt, táknrænt og skemmtilegt hlaup. Jóla og nýárskveðjur frá Hlaupahópnum.
- HEIM
- FRÉTTIR
- MYNDIR
- HVERFIÐ OKKAR
- AÐSENT EFNI
- ÍÞRÓTTIR
- UM OKKUR