Verður Vogurinn svartur og bleikur eða gulur og blár?

Verður Vogurinn svartur og bleikur eða gulur og blár?

Þessu verður svarað þriðjudaginn 26. janúar þegar Vængir Júpíters og Fjölnir mætast í sannkölluðum baráttuslag um Voginn.

Leikurinn verður að sjálfsögðu í beinni útsendingu á Vængir Júpíters TV.

Þessi leikur verður einnig styrktarleikur en leikmaður sem tengist báðum liðum missti nýverið nákominn aðstandanda og hafa liðin ákveðið að styrkja Píeta samtökin að þessu sinni.

Leikmenn, þjálfarar og stjórnarmenn munu leggja þessu lið með þvi að styrkja sem um nemur einum aðgangsmiða á leik eða 1.500 kr. Þá munu Vængir Júpíters leggja söfnuninni lið með 50.000 kr. framlagi.

Við hvetjum alla, stóra sem smáa, fyrirtæki og einstaklinga til að styrkja þetta mikilvæga málefni og fylgjast með þessum spennandi handboltaleik í beinni! Við tökum við frjálsum framlögum og bendum á styrktarreikning Fjölnis og Vængja: 0133-15-200680, kt. 631288-7589. Einnig er hægt að kauða miða í gegnum Aur app í síma 664 5206 eða hafa samband við vaengirjupiters.handbolti@gmail.com.

Leikmenn og starfsmenn beggja liða munu einnig heiðra minningu allra sem hafa fallið fyrir eigin hendi með sorgarböndum og einnar mínútu þögn fyrir leik.

Viðburður á Facebook

Með Fjölniskveðju,

Virðing – Heilbrigði – Samkennd – Metnaður

Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.