Setningarhátíð Lífshlaupsins á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands

  • Setningarhátíð Lífshlaupsins fór fram í morgun í  Rimaskóla í Grafarvogi. 
  • Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdarstjóri ÍSÍ og Þóranna Rósa Ólafsdóttir skólastýra ávörpuðu gesti.  
  • Jónína Ómarsdóttir, íþróttakennari stjórnaði þrautabraut sem ræðumenn, skólastýra og nemendur tóku þátt í. Blossi lukkudýr ÍSÍ hvatti keppendur áfram og var stemningin gríðarlega góð.

Mikil gleði ríkti í Rimaskóla í morgun þegar Lífshlaupið var ræst í fjórtánda sinn. Þóranna Rósa Ólafsdóttir skólastýra bauð gesti velkomna. Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdarstýra ÍSÍ ávarpaði svo gesti ásamt þeim Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra og Degi B. Eggertssyni, borgarstjóra. Að lokum kepptu ræðumenn og skólastýra í skemmtilegri þrautabraut ásamt nemendum undir stjórn Jónínu Ómarsdóttur íþróttakennara skólans. Blossi, lukkudýr ÍSÍ mætti á svæðið öllum til mikillar ánægju.

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna með það að markmiði að hvetja landsmenn til að gera hreyfingu að föstum lið í lífi sínu, hvort sem er í frítímanum, í vinnunni, í skólanum eða við val á ferðamáta. Lífshlaupið er góður vettvangur fyrir þá sem vilja byrja að hreyfa sig eða eru nú þegar að hreyfa sig reglulega og vilja skrá hreyfinguna markvisst, hafa yfirsýn og setja sér markmið. Auk þess að hvetja til hreyfingar daglega þá skapar verkefnið skemmtilega stemningu á vinnustöðum og í skólum sem keppa sína á milli og innanhúss.

Nýjung í ár er smáforrit Lífshlaupsins sem finna má bæði í App Store og Play Store undir nafninu Lífshlaupið. Í því má skrá alla sína daglegu hreyfingu á afar einfaldan hátt.

Nánari upplýsingar um Lífshlaupið og skráningu gefur Hrönn Guðmundsdóttir, sviðsstjóri Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, á hronn@isi.is, eða í síma: 514-4000.

Vefsíða: https://lifshlaupid.is/


Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.