Menningarhús Spönginni, 5. júlí – 31. ágúst 2018 – Sumarsýning félagsmanna í Litku – myndlistarfélagi

Sumarsýning félagsmanna í Litku – myndlistarfélagi

Menningarhús Spönginni, 5. júlí – 31. ágúst 2018

Félagsmenn í Litku sýna vatnslitamyndir og olíumálverk.

Litka er félag fólks á öllum aldri sem sameinast í áhuga sínum á myndlist. Félagið var stofnað árið 2009 og hefur síðan þá haldið úti blómlegu starfi og sýnt á fjölmörgum stöðum.

Litka hefur á að skipa rúmlega hundrað félagsmönnum, hópurinn er fjölbreyttur og einstaklingarnir með ýmiss konar bakgrunn. Fjölbreytnin endurspeglast gjarnan í samsýningum hópsins, en í sumar sýnir hópur félagsmanna vatnslitamyndir og olíumálverk á Borgarbókasafninu Menningarhúsi Spönginni.

FB-síða viðburðarins

Verið öll velkomin á opnun sýningarinnar, fimmtudaginn 5. júlí kl. 17!

Nánari umsjón veitir:
Sigríður Stephensen
Sigridur.Steinunn.Stephensen@reykjavik.is

 

Um höfundinn

Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.