Hvergiland

Hvergiland - Borgaskóli

Hvergiland – Borgaskóli

Frístundaheimilið Hvergiland er staðsett við Vættaskóla, Borgir í Grafarvogi.  Hvergiland er eitt af átta starfandi frístundaheimilum sem tilheyra frístundamiðstöðinni Gufunesbæ. Hvergiland tók til starfa haustið 2003 og flutti inn í skóla haustið 2012.

Frístundaheimilið Hvergiland er staðsett í stofum 110, 111 og 112 inn í Vættaskóla, Borgir. Einnig samnýtum við kennslustofur og íþróttahúsið, eftir samkomulagi við skóla. Í frístundaheimilinu er staðsett gott eldhús þar sem börnin snæða síðdegishressingu. 

Við leggjum áherslu á barnalýðræði í starfsemi okkar auk þess að vinna eftir fjölgreindarkenningu Howard Gardners með það að leiðarljósi að bjóða uppá fjölbreytt starf fyrir öll börn.

Boðið er uppá skipulagða dagskrá fyrir alla aldurshópa. Innra skipulag er byggt upp þannig að yngstu börnin fá mest frjálsan leik en tilboðum fjölgar svo eftir því sem þau verða eldri. Hópa og klúbbastarf er sniðið eftir aldri og þroska barnanna en einnig eftir áhugasviði þeirra og hafa þau áhrif á hvað er í boði. 

Vikulega erum við með barnaráð sem skipuleggur komandi föstudag. Þá er dregið í ráðið á þriðjudegi og ráðið fundar svo strax og skipuleggur hvað verður í boði og hvernig þema verður. Börnin fá eins frjálsar hendur og hægt er varðandi skipulag og þurfa sjálf að útbúa það sem þarf, ef það þarf. 

Öll börn í Hvergilandi fá að sitja einu sinni hvern vetur í barnaráði og 1. bekkur verða fulltrúar eftir áramót. 

Símanúmer Hvergilands er: 411-7789 og 695-5198 og tölvupóstfangið er:hvergiland@reykjavik.is    hvergiland@reykjavik.is

Um höfundinn

Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.