Gunni Helga og töfrahurðarhljómsveitin 19.október í Borgarbókasafninu Spönginni

Gunni Helga og töfrahurðarhljómsveitin
Borgarbókasafnið I Menningarhús Spönginni
Föstudaginn 19. október kl. 14
Ath að viðburðurinn er einnig í Gerðubergi sama dag kl. 11 og í Grófinni kl. 16.
Gunnar Helgason, Leifur Gunnarson og félagar bjóða fjölskyldum á frábæra skemmtun í haustfríinu. Enginn veit nákvæmlega hvað mun gerast, en fólk er beðið að hafa varann á því uppákoman gæti innihaldið snefilmagn af ótömdum spuna.

Eitthvað alveg svakalega dulafullt gerðist um daginn! Það kom í ljós að í gegnum eina skrýtna hurð kemur af og til furðulegt fólk með enn furðulegri hljóðfæri? Fá krakkarnir kannski að prófa hljóðfærin? Hefur píanóið skroppið saman? Mun einhver bresta í söng? Þetta kemur allt í ljós þegar töfrahurðin opnast.

Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Ókeypis aðgangur.

Flytjendur:
​Gunnar Helgason, Leifur Gunnarsson, Svanhildur Lóa Bre, Tómas Jónsson, Rósa Guðrún Sveinsdóttir

 

Um höfundinn

Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.