Frábær sigur hjá Fjölni fyrir austan

Fjölnir í fótboltaFjölnir vann fábæran útisigur á Selfyssingum í kvöld 1. deildinni á Selfossi, 1-2. Gestirnir í Fjölni komust í 2-0 á fyrsta hálftíma leiksins með mörkum þeirra Bergsveins Ólafssonar og Hauks Lárussonar.

Selfyssingar efldust hinsvegar í hálfleik og skoraði Sindri Snær Magnússon skömmu eftir leikhlé, en nær komust heimamenn ekki. Eftir leikinn eru Fjölnismenn í fimmta sæti deildarinnar með 15 stig.

,,Gleði og ekkert annað. Erfiður útivöllur og frábær karaktersigur,“  sagði Ágúst Gylfason, þjálfari Fjölnis, eftir 2-1 sigur á Selfossi.

Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.