Fjölmennt skákmót Fjölnis á sumardaginn fyrsta

Frábær þátttaka var á Sumarskákmóti Fjölnis í Rimaskóla þar sem 75 efnilegir skáksnillingar á grunnskólaaldri fögnuðu sumrinu við skákborðið. 

Setið við hvert borð þegar Sumarskákmótið var formelga sett í Rimaskóla (Ljósm. Baldvin Örn Berndsen)

Rótarýklúbbur Grafarvogs gaf líkt og áður alla verðlaunagripi á sumarskákmótið en alla vinninga og glaðning gáfu Hagkaup, EmmEss, Pizzan, Bókabúð Grafarvogs, CoCo´s tískuverslun og Ekran.  

Vegna fjölda þátttakenda og sóttvarnatakmarkanna var keppendum skipt á tvö svæði. Stúlknaflokkurinn alls 30 skádrottningar tefldi í fjölnýtistofu á meðan að  45 drengir kepptu í hátíðarsal skólans í eldri og yngri flokki. 

Flestir þátttakendur voru frá Skákdeild Fjölnis en á meðal strákanna voru allir sterkustu skákmenn TR og Breiðabliks mættir. 

Rimaskólastelpur hafa aldrei verið fjölmennari né beittari við skákborðið en núna í vetur og kom það greinilega í ljós á sumarskákmótinu þegar þær þær lentu í 10 af 11 efstu sætunum. Fjölnisstrákar höfðu minna að gera í gestina frá TR og Breiðablik og urðu að gefa þeim eftir efstu sætin. 

Þeir Eiríkur Emil Hákonarson í eldri flokk og Kamil Roman Klimaszewski í yngri flokk stóðu sig best af Fjölnisstrákum en þær Hrafndís Karen Óskarsdóttir og Emilía Embla B. Berglindardóttir í hópi stúlkna. 

Allir keppendur sem voru á aldrinum 6 – 16 ára gengu glaðir út í sumarið að loknu velheppnuðu skákmóti 

Þrjár efstu í stúlknaflokki: Iðunn Helgadóttir, Hrafndís Karen Óskarsdóttir og Emilía Embla B. Berglindardóttir ásamt Helga Árnasyni formanni Skákdeildar Fjölnis  (Ljósm. Aneta Klimaszewska

)

Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.