Skessur sem éta karla – Borgarbókasafnið Spönginni 10.sept kl 17.00

Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur hefur rannsakað mannát í íslenskum þjóðsögum. Það birtist í nokkrum tröllasögum, yfirleitt eru það tröllskessur sem éta karla, sem vitnar um átök kynjanna í þessum sögnum. Þjóðsögunum var flestum safnað, þær skrifaðar og sagðar af körlum. Hvað segir það okkur um samfélagið sem sögurnar spretta úr?

Í rannsóknum sínum fléttar Dagrún Ósk saman þjóðsögunum og nýrri hugmyndum um femínisma, niðurstöður sínar setur hún fram á veggspjöldum, í samstarfi við teiknarann Sunneva Guðrún Þórðardóttir (þf.) sem teiknaði myndina hér að ofan.

Verið velkomin á opnun sýningarinnar, mánudaginn 10. september kl. 17!

Sýninguna má svo skoða á opnunartíma safnsins, mán-fim 10-19, fös 11-19 og lau 12-16.

Í tengslum við sýninguna heldur Dagrún Ósk fyrirlestur undir yfirskriftinni „Fáir hafa notið bónda síns betur en ég“, mánudaginn 24. september kl. 17:15.

 

 

Um höfundinn

Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.