Siglfirðingamessa 26. maí kl. 14:00

Séra Vigfús Þór Árnason, fyrrverandi sóknarprestur á Siglufirði og Siglfirðingurinn séra Kjartan Örn Sigurbjörnsson sjúkrahúsprestur þjóna fyrir altari. Um ritningarlestra sjá Siglfirðingarnir séra Arnfríður Guðmundsdóttir, prófessor við guðfræðideild Háskóla Íslands og Hólmfríður Ólafsdóttir djákni. Siglfirðingurinn Jóhann Heiðar Jóhannsson læknir heldur ræðu. Um bænalestur sjá Siglfirðingarnir  Hermann Jónasson, Jónas Skúlason og Margrét Birgisdóttir.

Kór Grafarvogskirkju syngur og Siglfirðingarnir Hlöðver Sigurðsson og Þorsteinn Sigurðsson sjá um einsöng. Organisti er Hákon Leifsson.

Meðhjálpari er Hermann Jónasson, fyrrverandi meðhjálpari og kirkjuvörður á Siglufirði.
Hátíðarsöngvar séra Bjarna Þorsteinssonar, fyrsta heiðursborgara Siglufjarðar, eru  fluttir í messunni.

Siglfirðingakaffi eftir messu

Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.