Myndlistarsýning Þórunnar Báru 5.október kl 17-19 – Borgarbókasafnið Spönginni

Myndlistarsýning Þórunnar Báru.

Verkin á sýningunni eru gerð á árinu 2018 og hafa tilvísun í rannsóknir á þróun lífríkis og jarðfræði í Surtsey en Þórunn Bára hefur unnið með þann efnivið síðastliðinn áratug.

Þórunn Bára vinnur með náttúruskynjun og trúir því að skynreynsla sé vannýtt leið að gagnrýnni hugsun og ábyrgð einstaklings á umhverfi og eigin lífi, sem gæti dregið úr firringu og orðið hvati til góðra verka. Hún vinnur stór litrík verk með óræðum formum í þeirri trú að það stöðvi tímann eitt augnablik og dragi úr streitu í innra samtali manns við hversdagslega náttúru. Þórunn Bára leitar að undirliggjandi formgerð í óreiðu lifandi náttúru sem hún túlkar með óhlutbundnu og hlutbundnu myndmáli. Hún ímyndar sér að með því varpi hún ljósi á undrið í lífinu, fegurðina og margbreytileikann í sköpun og eyðileggingu, lífsbaráttu og leit alls sem lifir í náttúrunni eftir öryggi.

Verkin vinnur Þórunn Bára í seríum og eru þau hluti af heildarverki, nokkurskonar sjónrænni skráningu á lífríki Surtseyjar.
Þórunn Bára lauk prófi í málun og teikningu frá Listaháskólanum í Edinborg og mastersprófi í listum frá Wesleyan háskóla í Bandaríkunum.

Þórunn Bára er nú sjálfstætt starfandi myndlistarmaður í Reykjavík og má kynnast verkum hennar á vefsíðu hennar, www.thorunnbara.is. Verk Þórunnar Báru eru sýnd og til sölu á Gallerí Fold en einnig má nálgast verk á vinnustofu hennar.

Verið öll velkomin á opnunina, föstudaginn 5. október kl. 17:00!

Nánari upplýsingar veitir:
Sigríður Stephensen, sigridur.steinunn.stephensen@reykjavik.is

 

 

Um höfundinn

Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.