Messa í Grafarvogskirkju og síðasta Selmessan fyrir sumarfrí í Kirkjuselinu

Messa kl. 11:00 í Grafarvogskirkju. Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir prédikar og þjónar. Kór Grafarvogskirkju leiðir söng og organisti er Hákon Leifsson.

Sunnudagaskóli kl. 11:00 á neðri hæð Grafarvogskirkju. Umsjón hafa Þóra Björg Sigurðardóttir og Hólmfríður Frostadóttir. Undirleikari er Stefán Birkisson.

Selmessa kl. 13:00 í Kirkjuselinu. Séra Grétar Halldór Gunnarsson prédikar og þjónar. Vox Populi leiðir söng og organisti er Hilmar Örn Agnarsson. Þetta er síðasta Selmessan fyrir sumarfrí og af því tilefni ætlar Vox Populi að halda litla tónleika fyrir messuna frá kl. 12:30.

Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.