Korpúlfsstaðir

Korpúlfsstaðir eru jörð í Reykjavík kenndir við Korpúlf bónda sem getið er í Kjalnesinga sögu. Jörðin varð eign Viðeyjarklausturs á miðöldum og varð síðan konungseign. Thor Jensen eignaðist jörðina árið 1922 og reisti þar núverandi hús og fullkomið mjólkurbú sem lagðist af vegna mjólkursölulaganna 1934. Reykjavíkurborg keypti eignina af Thor árið 1942. Húsnæðið var notað sem geymsla, meðal annars fyrir málverk í eigu borgarinnar. Mikið skemmdist þar í bruna 18. janúar 1969. Korpuskóli var á Korpúlfsstöðum frá 1999 – 2005. Í þeim hluta sem skólinn var starfræktur eru nú vinnustofur listamanna ásamt aðstöðu til myndlistarkennslu. Þar er nú aðsetur fyrir listamenn. Um landið rennur Úlfarsá, eða Korpa, sem er góð laxveiðiá.

Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.