Fjölnishlaup Gaman ferða 10.maí kl 11.00

Annað Powerade sumarhlaupið 2018 er Fjölnishlaup Gaman ferða sem ræst verður í 30. sinn fimmtudaginn 10. maí kl. 11:00 frá Íþróttamiðstöðinni í Grafarvogi við Dalhús á 30 ára afmælisári Fjölnis. Fjölnishlaupið er jafnfram Íslandsmótið í 10 km hlaupi í ár.

Vegalengdir
10 km, 5 km og 1,4 km skemmtiskokk.

Athugið að aðeins 10 km hlaup gildir til stiga í Powerade sumarhlaupunum.

Þátttökugjöld og skráning
3.000 kr fyrir 10 km hlaup og 2.500 kr fyrir 5 km hlaup með forskráningu á hlaup.is fram að miðnætti 9. maí en 3.500 kr (10 km) og 3.000 kr (5 km) ef skráð er á staðnum.
Fyrir skemmtiskokk er þátttökugjaldið 1.000 kr, en hver fjölskylda greiðir að hámarki 3.000 kr fyrir þátttöku í skemmtiskokki.

Afhending forskráningargagna og skráning á staðnum verður í anddyri Sundlaugar Grafarvogs kl. 9:00-10:30.

Hlaupaleiðirnar
10 km hlaupið verður ræst kl 11:00 frá göngustíg við Gagnveg sem er um 500 m norðaustan við Íþróttamiðstöðina í Dalhúsum – sjá kort. Hlaupið verður vestur fyrir fótboltavöllinn eftir Gagnvegi og um Fjallkonuveg og þaðan beygt niður göngustíg í átt að Grafarvogi og hann hlaupinn í vesturátt. Beygt verður inn í Bryggjuhverfið um Gullinbrú og þaðan verður hlaupið eftir göngustíg meðfram Elliðaárósum og yfir gömlu brýrnar við Geirsnef. Réttsælis hringur er tekinn um Geirsnef yfir nýju hjóla- og göngubrýrnar við Elliðaárósa. Síðan verður sama leið hlaupin til baka. Endamark er við Íþróttamiðstöðina í Dalhúsum. Brautin hefur verið löglega mæld og verða því afrek tekin gild í afrekaskrá FRÍ. Brautin er annáluð fyrir góðar bætingar enda mjög flöt ef frá er talinn upphafs- og lokakílómetri.

5 km hlaupið verður ræst kl 11:10 frá endamarki.  Hlaupaleiðin er sú sama fyrri helming hlaupsins, en í Bryggjuhverfi verður snúið við og hlaupið sömu leið til baka.

Skemmtiskokkið verður ræst skömmu á eftir 5 km hlaupinu. Í skemmtiskokkinu verður 1,4 km hringur hlaupinn um Dalhús og yfir á Fjallkonuveg – sjá kort. Sjá PDF útgáfu af korti

Tímataka og úrslit
Tímataka verður með flögum í öllum vegalengdum.

Úrslit verða birt á síðum Powerade sumarhlaupanna og hlaup.is

 

Verðlaun

  • Farandbikarar fyrir 1. sæti karla og kvenna í 10 km hlaupum
  • Verðlaunagripir fyrir fyrsta sæti karla og kvenna í öllum vegalengdum
  • Verðlaunapeningar fyrir fyrsta sæti karla og kvenna í hverjum aldursflokki í öllum vegalengdum
  • Þátttökupeningar
  • Tvenn gjafabréf frá Gaman ferðum í útdráttarverðlaun að verðmæti 50 þús. kr hvort
  • Fjöldi annara glæsilegra útdráttarverðlauna
  • Keppendur í 10 fyrstu sætum karla, kvenna og í aldursflokkum í 10 km hlaupi öðlast stig í keppni um stigahæstu hlaupara í Powerade sumarhlaupum

Aldursflokkar

5 km og 10 km hlaup

  • 18 ára og yngri
  • 19-39 ára
  • 40-49 ára
  • 50-59 ára
  • 60 ára og eldri

Skemmtiskokk

  • 10 ára og yngri
  • 11-12 ára
  • 13-14 ára
  • 15 ára og eldri

Annað
Drykkir í boði CCEP við 5 km og í endamarki og frítt í sund að hlaupi loknu.
Hlaupstjóri: Erla Gunnarsdóttir, (erlagu@internet.is)
Heimasíða skipuleggjenda: www.fjolnir.is

 

 

 

 

Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.