Fermingar hefjast í Grafarvogskirkju

Fermingar hefjast í Grafarvogskirkju á Pálmasunnudag. Á meðan fermingunum stendur er þó alltaf sunnudagaskóli á neðri hæð kirkjunnar og Selmessa í Kirkjuselinu kl. 13:00 á sunnudögum.

Pálmasunnudagur:

Ferming kl. 10:30 í Grafarvogskirkju. Prestar eru Guðrún Karls Helgudóttir og Grétar Halldór Gunnarsson. Kór Grafarvogskirkju leiðir söng og organisti er Hákon Leifsson.

Ferming kl. 13:30 í Grafarvogskirkju. Prestar eru Arna Ýrr Sigurðardóttir og Sigurður Grétar Helgason. Kór Grafarvogskirkju leiðir söng og organisti er Hákon Leifsson.

Sunnudagaskóli á neðri hæð kirkjunnar kl. 11:00. Umsjón hefur Þóra Björg Sigurðardóttir og undirleikari er Hilmar Örn Agnarsson.

Selmessa kl. 13:00 í Kirkjuselinu. Séra Grétar Halldór Gunnarsson prédikar og þjónar. Vox Populi leiðir söng og organisti er Hilmar Örn Agnarsson.

Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.