Dregyn

Dregyn

Dregyn

Félagsmiðstöðin Dregyn-Vættaskóla Sími: 695-5180 og 411-5600

dregyn@reykjavik.is      www.gufunes.is/dregyn

Við samruna unglingadeilda Borgaskóla og Engjaskóla í Vættaskóla sameinuðust í kjölfarið félagsmiðstöðvarnar Borgyn og Engyn. Unglingar Vættaskóla stóðu fyrir nafnasamkeppni og fékk nafnið Dregyn flest atkvæði í kosningu. Félagsmiðstöðin Dregyn þjónar börnum og unglingum í 5. – 10. bekk í Vættaskóla. Aðalstarfsemin fer fram í húsakynnum Vættaskóla-Borgum, þó einstaka viðburðir/dagskrárliðir fari fram í Vættaskóla-Engjum. Félagsmiðstöðvar í Reykjavík starfa samkvæmt Starfsskrá skrifstofu tómstundamála (ÍTR) sem kom út vorið 2007 og er megináherslan lögð á starf fyrir unglinga á aldrinum 13-16 ára. Starf fyrir börn á aldrinum 10-12 ára hefur þó verið að aukast í félagsmiðstöðvunum í Grafarvogi undanfarin ár. Í starfi félagsmiðstöðva er lögð áhersla á að þjálfa samskiptafærni, auka félagsfærni, styrkja sjálfsmynd og efla samfélagslega virkni og þátttöku. Barna- og unglingalýðræði er hugmyndafræðin sem starfið byggir á og tryggir áhrif barna og unglinga á starfið. Kosningar í miðstigs- og unglingaráð eru í anda þessarar hugmyndafræði en mikilvægasta hlutverk ráðanna er að virkja sem flesta til þátttöku í starfinu ásamt því að standa fyrir og skipuleggja dagskrána.

Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.